Sandgerðingar sækja um undanþágu í barnaverndarmálum
Félagsmálaráðuneytið hefur verið bréfi vakið sérstaka athygli sveitarstjórna á þeim nýmælum í barnaverndarlögum að samanlagður íbúafjöldi sveitarfélaga að baki barnaverndarnefnd skal ekki vera undir 1500 manns. Í ljósi þess hefur bæjarráð Sandgerðis falið bæjarstjóra að sækja um sérstaka undanþágu fyrir sveitarfélagið, en þar eru íbúar um 1400 talsins.Ráðuneytið getur veitt undanþágu ef samanlagður íbúafjöldi er nálægt 1500 eða aðrar aðstæður eru með þeim hætti að óhagkvæmt eða torvelt er að ná þeim íbúafjölda sbr. 4.mgr. 11.gr laganna. Bæjarráð Sandgerðis felur bæjarstjóra að sækja um undanþágu á grundvelli neðanritaðs:
Íbúatala Sandgerðisbæjar er 1400 um síðustu áramót og vaxandi.
Bæjarstjórn hefur í mörg ár ráðið vel menntaða félagsmálastjóra til að sjá um barnaverndarmál fyrir bæjarfélagið.
Engar kærur eða áminningar hafa komið fram er varðar þennan viðkvæma málaflokk frá árinu 1992 þegar ofanrituð ákvörðun um ráðningu félagsmálstjóra var fastákveðin í bæjarstjórn.