Bygg
Bygg

Fréttir

Sandgerðingar mótmæla ákvörðun umhverfisráðherra
Fimmtudagur 8. október 2009 kl. 08:41

Sandgerðingar mótmæla ákvörðun umhverfisráðherra


Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar mótmælir harðlega ákvörðun umhverfisráðherra um að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunar um Suðuvesturlínu. Formleg ályktun þess efnis var samykkt á fundi bæjarstjórnar í gær.

Ályktunin er svohljóðandi:

„Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar mótmælir harðlega ákvörðun umhverfisráðherra um að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunnar um Suðuvesturlínu og með því tefja mikilvæga atvinnuuppbyggingu á svæðinu og jafnvel tefla henni í tvísýnu.
 
Bæjarstjórn bendir í þessu sambandi á að atvinnuástand á Suðurnesjum er hvað verst á öllu landinu og skatttekjur sveitarfélaganna í samræmi við það. Ákvörðun ráðherrans skemmir fyrir áralöngum undirbúningi og mikilli vinnu sveitarfélaganna í atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Bæjarstjórn bendir einnig á óöryggi á flutningi rafmagns inn á svæðið við núverandi aðstæður.
 
Bæjarstjórn krefst þess að ákvörðun ráðherra verði endurskoðuð tafarlaust og hún dragi ákvörðun sína til baka.“

Bílakjarninn
Bílakjarninn