Bygg
Bygg

Fréttir

Sandgerðingar funda um fjármál bæjarins á opnum fundi í kvöld
Fimmtudagur 19. janúar 2012 kl. 01:48

Sandgerðingar funda um fjármál bæjarins á opnum fundi í kvöld

Bæjarstjórn Sandgerðis hefur boðað til opins kynningarfundar um fjármál Sandgerðisbæjar í kvöld, fimmtudagskvöld, og hefst fundurinn kl. 20. Á dagskrá fundarins er yfirlit yfir fjármál sveitarfélagsins og fjárhagsáætlun ársins 2012. Þá verða leyfðar fyrirspurnir.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Haraldur Líndal Haraldsson sem unnið hefur með fulltrúum sveitarfélagsins að úttekt á fjárhagslegri stöðu bæjarsjóðs verður á fundinum og mun fjalla um fjármál sveitarfélagsins.

Fundurinn í kvöld verður haldinn í Grunnskóla Sandgerðis og eru bæjarbúar hvattir til að mæta á fundinn.

Sigrún Árnadóttir, bæjarstjóri í Sandgerði, dregur ekki dul á að skuldir Sandgerðisbæjar séu miklar í viðtali við Viðskiptablaðið í síðustu viku.

„Já, skuldastaðan er mjög slæm. Við höfum auðvitað verið að gera ýmsar breytingar til þess að draga úr rekstrarkostnaði en skuldir og skuldbindingar eru að sliga Sandgerði. Um það bil helmingurinn af skuldum okkar eru skuldbindingar gagnvart Eignarhaldsfélaginu Fasteign og hinn helmingurinn er að stórum hluta skuldir við Lánasjóð sveitarfélaga.

Greiðslubyrðin er þung og skuldirnar eru eiginlega meiri en sveitarfélag af þessari stærðargráðu ræður vel við. Við búum hins vegar vel að eiga um einn milljarð í peningum en það er söluhagnaður af hluta Sandgerðis í Hitaveitu Suðurnesja á sínum tíma.

Við eigum í náinni samvinnu við eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga og höfum fengið utanaðkomandi ráðgjöf til þess að fara gaumgæfilega ofan í saumana á rekstrinum og skuldastöðunni. Núna erum við að vinna að þriggja ára fjárhagsáætlun og ég á von á því að við munum einnig gera tíu ára áætlun eins og ný sveitarstjórnarlög kveða á um.“