Fimmtudagur 18. júlí 2002 kl. 14:11
Sandgerðingar fá ekki undanþágu í barnaverndarmálum

Með vísan til undanþáguákvæðis barnaverndarlaga er niðurstaða Félagsmálaráðuneytisins sú að íbúafjöldi Sandgerðisbæjar sé ekki næg ástæða fyrir undanþágu frá 1.500 íbúa lágmarkinu. Félagsmálaráðuneytið hefur nýverið vakið sérstaka athygli sveitarstjórna á þeim nýmælum í barnaverndarlögum að samanlagður íbúafjöldi sveitarfélaga að baki barnaverndarnefnd skal ekki vera undir 1500 manns. Í ljósi sótti Sandgerðisbær um sérstaka undanþágu fyrir sveitarfélagið, en þar eru íbúar um 1400 talsins.Bæjarráð Sandgerðisbæjar fékk nýverið þetta svar frá ráðuneytinu. Bæjarráð leggur áherslu á að ráðuneytið endurskoði niðurstöðu sína þar sem niðurstaða ráðuneytisins muni setja í uppnám starf félagsmálastjóra á sviði forvarnarmála í leikskóla, grunnskóla og á sviði félagsmála almennt enda eru barnaverndarmál stór hluti þeirra mála sem starfið nær yfir.
Bæjarráð óskar eftir greinargerð frá félagsmálastjóra og að sú greinargerð fari með ítrekaðri ósk Sandgerðisbæjar.
Bæjarstjórn hefur í mörg ár ráðið vel menntaða félagsmálastjóra til að sjá um barnaverndarmál fyrir bæjarfélagið.
Engar kærur eða áminningar hafa komið fram er varðar þennan viðkvæma málaflokk frá árinu 1992 þegar ofanrituð ákvörðun um ráðningu félagsmálstjóra var fastákveðin í bæjarstjórn.