Fréttir

Sandgerði og Garði úthlutaður byggðakvóti
Gulþorskar.
Fimmtudagur 16. október 2014 kl. 11:00

Sandgerði og Garði úthlutaður byggðakvóti

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, hefur úthlutað Sandgerðisbæ 181 þorskígildistonna byggðakvóta og Sveitarfélaginu Garði 208 tonna kvóta. Frá þessu er sagt á vefsíðu atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

6.141 þorskígildistonna byggðakvóta er úthlutað fyrir fiskveiðiárið 2014/2015, samkvæmt 10. gr. laga nr. 116/2006, með síðari breytingum og samkvæmt reglugerð ráðuneytisins nr. 651 frá 4. júlí 2014.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Alls er byggðakvóta úthlutað til 31 sveitarfélags og í þeim fengu 48 byggðarlög úthlutun.

Úthlutun byggðakvótans byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2004/2005 til fiskveiðiársins 2013/2014.

Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá átta byggðarlög þá úthlutun.