Bygg
Bygg

Fréttir

Samúðarkveðjur til vina í Trollhattan
Föstudagur 23. október 2015 kl. 13:43

Samúðarkveðjur til vina í Trollhattan

Bæjaryfirvöld í Reykjanesbæ hafa sent borgarstjórn og íbúum vinabæjar Reykjanesbæjar í Svíþjóð; Trollhättan, innilegar samúðarkveðjur vegna þeirra hörmungaratburða sem þar urðu í gær.

Ungur maður réðst inn í grunnskóla í borginni, myrti einn kennara og einn nemanda og særði fleiri alvarlega.

„Starfsmenn og íbúar Reykjanesbæjar eru harmi slegnir yfir þessum atburði og hugur okkar er hjá vinum okkar í Svíþjóð,“ segir í frétt á vef Reykjanesbæjar.

Bílakjarninn
Bílakjarninn