Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Mánudagur 28. maí 2001 kl. 11:36

Samþykktur samhljóða

Á fundi hreppsnefndar Gerðahrepps s.l. mánudag var ársreikningur Gerðahrepps tekinn síðari umræðu og afgreiðslu. Ársreikningurinn var samþykktur af öllum fulltrúum hreppsnefndar.
Í reikningnum kemur fram að tekjur hækka um 14,59 % á merðan rekstur málaflokka hækka aðeins um 6,03 %. Skatttekjur hækkuðu um 31,1 milljón en rekstur málaflokka um 10,9 milljónir. Mismunur er 20,2 milljónir, sem sveitarfélagið hefur meira til ráðstöfunar til greiðslu vaxta, afborgana og fjárfestinga en á árinu 1999.
Sigurður Jónsson,sveitarstjóri Gerðahrepps sagðist vera sérstaklega ánægður með að tekist hefði að ná niður rekstri málaflokka úr 84,81% af skatttekjum niður í 78,48 %.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024