Bygg
Bygg

Fréttir

Samstarfssamningur um varðveislu og miðlun iðnminja undirritaður
Miðvikudagur 24. nóvember 2004 kl. 17:43

Samstarfssamningur um varðveislu og miðlun iðnminja undirritaður

Sigrún Ásta Jónsdóttir safnstjóri, Árni Sigfússon bæjarstjóri og Karl Hólm formaður IðnaðarmannafélagsinsIðnaðarmannafélag Suðurnesja og Reykjanesbæ skrifuðu í gær undir samstarfssamning um iðnminjasýningu og varðveislu muna og gagna sem tengjast félaginu á liðnum árum.

Samningurinn er gerður í tilefni af 70 ára afmæli Iðnaðarmannafélagsins þann 4. nóvember 2004 og ákvað stjórn félagsins að leita eftir samstarfi við Byggðasafn Reykjanesbæjar um sögu félagsins, félagsmanna og þeirra iðngreina sem tengst hafa starfi félagsins.

Félagið mun leggja fram 3 milljónir króna sem stofnframlag vegna samningsins og mun félagið jafnframt beita sér fyrir styrkjum til safnsins. Byggðasafnið mun leggja fram húsnæði, mannskap, tækjabúnað og almennan rekstur.

Við undirritunina sagði Sigrún Ásta Jónsdóttirr forstöðumaður Byggðasafns Reykjanesbæjar þann menningarheim sem birtist í mörgum gömlum gripum á íslenskum söfnum bera með sér mikinn hagleik og listfengi sem síðan vísi á enn stærri heim verkþekkingar og færni.

"Þótt okkur þyki sú þekking æði fábrotin og frumstæð í dag þá myndaði hún samt engu að síður grunninn fyrir þá verkþekkingu sem þurfti til að nútímavæða íslenskt samfélag í upphafi síðustu aldar.

Þannig var það tiltölulega lítið mál fyrir Sigurð Gíslason, sem fæddur var 1852, að svissa úr eldsmiðnum yfir í vélamanninn, þann fyrsta sem starfaði í Keflavík, árið 1906. Eins var um fjölda annarra sem þróuðu aldagamala verkþekkingu og gerðu nýja í takt við nýja tækni og nýtt samfélag. Án þessarar færni hefðum við varla náð þeim mikla árangri sem við raunverulega náðum með jafn skjótum hætti og raun varð á.

Saga iðngreina, iðnaðarmanna og þeirra félaga sem þeir hafa stofnað, eru mikilvægir þættir í sögu 20. aldar. Hvort sem litið er til iðngreinanna sjálfra eða til þeirra áhrifa sem iðnaðarmennirnir hafa haft á samfélag sitt með margvíslegum hætti. Sá sjóður þekkingar og færni er okkur jafn mikilvægur í dag sem grundvöllur þess að takast á við verkefni nýrrar aldar. Það er því sérstakt fagnaðarefni að stjórn Iðnaðarmannafélags Suðurnesja ákvað í tilefni 70 ára afmælis félagsins að leita eftir samstarfi við Byggðasafn Reykjanesbæjar um að varðveita og miðla sögu þeirri sem félagið tengist, þá var ákveðið að styrkja safnið sérstaklega um 3 milljónir króna vegna þessa samnings. Hér er gengið vasklega til verks og vil ég nota tækifærið og þakka kærlega þennan góða og stóra hug sem hér birtist".

Tilgangur Iðnaðarmannafélags Suðurnesja með samningnum er að stuðla að varðveislu tækniminja og þess menningarheims sem þeim tengjast, að kynna almenningi starfsemi og sögu iðngreinanna, efla áhuga og hvetja ungmenni til iðnnáms og gera iðnaðarmannatal Suðurnesja aðgengilegt.

Byggðasafnið mun leggja áherslu á iðngreinarnar í starfsemi safnsins sem mun m.a. sjást í sérstakri söfnunarstefnu vegna þeirra, í sýningum safnsins og rannsóknarstarfi varðandi uppfærslu Iðnaðarmannatals Suðurnesja.
Af vef Reykjanesbæjar
Bílakjarninn
Bílakjarninn