Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Samstarf um jarðhitanýtingu undirritað hjá Keili
Miðvikudagur 27. ágúst 2008 kl. 12:57

Samstarf um jarðhitanýtingu undirritað hjá Keili

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024



Samstarfssamningur milli ríkisstjórna Íslands, Bandaríkjanna og Ástralíu um aukinn afrakstur jarðhitakerfa og átak í þróun nýrrar tækni í jarðhitanýtingu verður undirritaður hjá Keili á Keflavíkurflugvelli á morgun, fimmtudag.


Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra undirritar samninginn fyrir Íslands hönd, en Katharine Fredriksen, aðstoðarráðherra í orkumálaráðuneyti Bandaríkjanna, og Sharyn Minahan, sendiherra Ástralíu, skrifa undir sem fulltrúar Bandaríkjanna og Ástralíu, segir í frétt mbl.is

Jarðhitasérfræðingar frá ofangreindum ríkjum halda fyrsta vinnufundinn í þessu alþjóðlega samstarfi í Þjóðminjasafninu í Reykjavík í dag og í fyrramálið þar sem samstarfsverkefni eru skilgreind nánar. Gert er ráð fyrir því að fleiri þjóðum verði boðið til þessa vísinda- og tæknisamstarfs á jarðahitasviðinu á næstu misserum, að því er segir í tilkynningu.