Samstarf milli Flugakademíu Keilis
– og Flugskóla Akureyrar
Flugakademía Keilis og Flugskóli Akureyrar undirrituðu þann 7. maí sameiginlega viljayfirlýsingu um samstarf með það að markmiði að auka gæði og fjölbreytileika námsframboðs, sem og efla þjónustu við viðskiptavini skólanna.
Í viljayfirlýsingunni kemur fyrir að Flugakademía Keilis og Flugskóli Akureyrar lýsa yfir vilja til aukins samstarfs fjölmörgum sviðum, þar á meðal gagnkvæma kynningu á námsframboði skólanna, sér í lagi sem snýr að möguleikum til atvinnuflugmannsnáms hjá Flugakademíu Keilis, samnýtingu og sameiginlega þróun á kennsluefni, þróun á nýju námsframboði, o.fl.
Starfsfólk og kennarar Flugakademíu Keilis fagnar þessari viljayfirlýsingu og lítur björtum augum á framtíðar samstarf við Flugskóla Akureyrar. Samstarfið verður formlega kynnt síðar og munum við þá greina betur frá helstu samstarfsliðum.
Friðrik Ólafsson, yfirmaður bóklegrar kennslu hjá Flugakademíu Keilis og Kristján Kristjánsson framkvæmdastóri Flugskóla Akureyrar undirrituðu samninginn í flugskýli Flugskóla Akureyrar.