Bygg
Bygg

Fréttir

Samstarf foreldra og kennara í grunnskólum afar gott
Föstudagur 3. maí 2013 kl. 15:03

Samstarf foreldra og kennara í grunnskólum afar gott

Samkvæmt niðurstöðum úr Skólavoginni er samstarf milli foreldra og kennara í grunnskólum Reykjanesbæjar afar gott.

Að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra Reykjanesbæjar er ánægjulegt að sjá hve vel kennarar vinna með foreldrum í starfi sínu og kennarar eru greinilega að sinna starfi sínu með foreldrum eins og best gerist á landinu.  Í Skólavoginni kemur meðal annars fram hvað viðkemur samstarfi heimilis og skóla að foreldrar eru ánægðir með þátttöku sína í skólagöngu barnanna og telja hana mikilvæga. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Foreldrar hafa trú á eigin getu við að aðstoða börn sín í námi og hafa tíma, vilja og getu til að sinna börnum við heimanámið.  Síðast en ekki síst telja foreldrar grunnskólabarna í Reykjanesbæ sig hafa mikil áhrif á ákvarðanir varðandi nemendur og kunna vel að meta frumkvæði kennara í foreldrasamstarfi.