Samstarf á sviði forvarna í fjölskyldumálum

Allir íbúar Suðurnesja eiga aðgang að þjónustu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), en markmiðið með Reykjanesbæjar með þátttöku í verkefninu er að auka þjónustu við íbúa Reykjanesbæjar, auka samvinnuna við HSS, og skapa samfellu í Reykjanesbæ milli greiningarvinnu, aðgerðaáætlunar og úrræða í kjölfar hennar.
Samkvæmt samstarfssamningnum leggur Heilbrigðisstofnunin til eitt og hálft stöðugildi sérfræðinga í sálfélagslega teymið og Reykjanesbær leggur til eitt stöðugildi sérfræðinga á móti stofnuninni. Samtals eru því tvö og hálft stöðugildi ætluð í verkefnið.
Stöðugildi það sem Reykjanesbær leggur til er fullt starf sálfræðings sem sinnir íbúum Reykjanesbæjar. Stöðugildi þau sem Heilbrigðisstofnun Suðurnesja leggur til eru sálfræðingur, iðjuþjálfi og félagsráðgjafi sem allir verða í hálfu starfi. Þeir sinna íbúum Suðurnesja og heyra undir yfirlækni heilsugæslunnar.
Sérfræðingurinn sem Reykjanesbær leggur til þessarar mikilvægu þjónustu verður til húsa í húsakynnum Reykjanesbæjar og hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem sérfræðingar stofnunarinnar starfa.
Samstarfsverkefnið sem nú er hrint í framkvæmda er einnig rannsóknaverkefni. Þetta þýðir að mælanlegur árangur þjónustunnar sem nú verður boðið upp á verður frá upphafi metinn með vísindalegum hætti í samvinnu við sérfræðinga á Námsmatsstofnun og í Háskóla Íslands. Deildarstjóri sérfræðiþjónustu hjá Reykjanesbæ er verkefnisstjóri í þeim hluta verkefnisins sem snýr að rannsóknaþættinum.
Það voru þau Sigríður Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, og Árni Sigfússon, bæjarstjóri, í Reykjanesbæ sem undirrituðu samstarfssamninginn sem gildir til árs frá undirritun, en þá verður hann endurskoðaður. Binda bæði mikilar vonir við þjónustuna sem samstarfssamningurinn tryggir. Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, var viðstödd þegar samstarfssamningurinn var formlega undirritaður.
Frá þessu er greint á vef HSS.