Samræmi sé í ákvörðunum gangvart rekstri knattspyrnumannvirkja
Bæjarráð Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis telur mikilvægt að samræmi sé í þeim ákvörðunum sem teknar eru gangvart rekstri knattspyrnumannvirkja í sveitarfélaginu. Samningar vegna beggja knattspyrnuvalla eru lausir í árslok og er umræðu um þá vísað til fjárhagsáætlunargerðar ársins 2019 og til umsagnar í íþrótta-og tómstundaráði.
Erindi Knattspyrnufélagsins Víðis, þar sem óskað var eftir styrk upp á 1,5 milljónir króna til kaupa á sláttuvél til grashirðingar á æfingasvæði félagsins var vísað til vinnslu hjá bæjarstjóra.