Samræmdu prófin: Grunnskólinn í Grindavík hæstur á Suðurnesjum
Svart og sykurlæaust fylgist mætavel með atburðum líðandi stundar og fóru samskipti Kristins H. Gunnarssonar og Framnsóknarflokksins ekki fram hjá honum frekar en öðrum. Mikið mæddi á Hjálmari Árnasyni, þingflokksformanni flokksins, og í framhaldinu sendu Samtök herstöðvarandstæðinga svohljóðandi fréttatilkynningu frá sér í dag.
Fréttatilkynning frá Samtökum herstöðvaandstæðinga:
Miðnefnd Samtaka herstöðvaandstæðinga samþykkti einróma á fundi sínum þann 30. september sl. að Hjálmari Árnasyni, fyrrverandi skólameistara og núverandi þingflokksformanni, verði ekki falin nein ábyrgðarstörf á vegum SHA í framtíðinni. Ástæðan er trúnaðarbrestur milli Hjálmars og SHA, sem einkum hefur komið fram í eftirtöldum atriðum:
* Ítrekuðum stuðningi Hjálmars Árnasonar við stríðsrekstur og sprengjuárásir í fjarlægum löndum.
* Þeirri yfirlýstu afstöðu Hjálmars Árnasonar að Íslendingar skuli fylgja árásarstefnu Bandaríkjastjórnar í því skyni að skæla út áframhaldandi dvöl hersins á Miðnesheiði.
* Margra ára afskiptaleysi Hjálmars Árnasonar af samkomum og aðgerðum samtakanna síðan á 9. áratug síðustu aldar.
Ekki er með þessu verið að reka Hjálmar úr Samtökum herstöðvaandstæðinga, en áframhaldandi félagsaðild verður hann eiga við sína eigin samvisku. Það er réttur Hjálmars að mæta á fundi í samtökunum, en koma verður í ljós hvort herstöðvaandstæðingar treysta sér til að ræða viðkvæm málefni í návist hans.
Hjálmari Árnasyni hefur verið kynnt þessi ákvörðun bréfleiðis. Hann mun heldur ekki fá sendan Dagfara, tímarit SHA en getur nálgast eintök af honum á skrifstofu samtakanna.
Samtök herstöðvaandstæðinga
Mynd úr safni VF