Samningur við vatnsveitur
Hitaveita Suðurnesja hefur undirritað samning við vatnsveitur í Reykjanesbæ, Grindavík, Sandgerði, Garði og Vogum um að HS hf annist í meginatriðum vatnsöflun vatnsveitnanna og selji síðan vatnið samkvæmt mæli við bæjarmörk hvers sveitarfélags. Viðræður um þennan samning hafa staðið lengi, en liðin eru a.m.k. 4 ár frá því viðræður um slíkan samning hófust. Samningur er nú frágenginn og mun HS hf því í framtíðinni annast alla vatnsöflun fyrir vatnsveiturnar.