Fréttir

Samningur um uppbyggingu og viðhald reiðstíga í Suðurnesjabæ
Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Eiður Gils Brynjarsson formaður Hestamannafélagsins Mána undirrituðu samkomulagið fyrir hönd samningsaðila.
Laugardagur 30. maí 2026 kl. 13:59

Samningur um uppbyggingu og viðhald reiðstíga í Suðurnesjabæ

Hestamannafélagið mun í samstarfi við Suðurnesjabæ annast uppbyggingu reiðstíga. Einnig mun félagið annast reglubundið viðhald reiðstíga, með það að markmiði að reiðstígar séu ávallt í öruggu og góðu ástandi fyrir notendur. Í samningnum eru ákvæði um ábyrgð hestamannafélagsins á framkvæmd og um gæðaeftirlit í samræmi við reiðvegahandbók Vegagerðarinnar.

Samningurinn gildir árið 2026 og skal endurskoðaður að þeim tíma liðnum. Sveitarfélagið veitir hestamannafélaginu styrk að fjárhæð kr. 1.000.000 vegna verkefnisins.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Eiður Gils Brynjarsson formaður Hestamannafélagsins Mána undirrituðu samkomulagið fyrir hönd samningsaðila.

Bílakjarninn
Bílakjarninn