Samningur um þrettándabrennu undirritaður

Eftirlitsaðili með samningnum er Íþrótta-og tómstundaskrifstofa Reykjanesbæjar.
BS mun sjá um allan nauðsynlegan undirbúning, framkvæmd og hreinsun svæðis vegna þrettándabrennu. Afla leyfa, safna í brennu, gæslu og flugeldasýningu. BS útvegar bifreið í göngu og sér um alla gæslu.
Björgunarsveitin fær greitt kr. 950.000 árlega, en samningurinn er ótímabundinn, en verðbundinn og miðast við vísitölu byggingarkostnaðar.
Engin brenna verður um áramótin í Innri- Njarðvík eins og verið hefur á vegum Reykjanesbæjar.