Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Samningar tókust um Reykjaneshöfn
Föstudagur 3. júní 2011 kl. 13:18

Samningar tókust um Reykjaneshöfn


Reykjaneshöfn og Reykjanesbær hafa náð samningum við alla kröfuhafa um endurfjármögnun á skuldum Reykjaneshafnar til langs tíma. Samningar hafa
náðst við þá 19 lánveitendur sem semja þurfti við varðandi uppgjör núverandi skulda. Reykjaneshöfn bauð kröfuhöfum sínum að kaupa til uppgjörs á núverandi skuldum verðtryggð skuldabréf. Eftir endurfjármögnun munu allir kröfuhafar þannig eiga verðtryggðar kröfur sem bera 6% vexti, segir í frétt frá Reykjanesbæ.


Rekstraráætlun hafnarinnar sem samningar þessir byggja á er varfærin. Þannig hafa tekjur hafnarinnar af álveri ekki verið settar inn, né heldur 900 milljón kr. ríkisstyrkur til hafnarinnar, eins og fengist hefur hingað til frá ríkinu fyrir íslenskrar stórskipahafnir.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Reykjanesbær er eigandi Reykjaneshafnar. „Mikil vinna er að baki þessari lausn og því í höfn mikilvægur áfangi í að styrkja stöðu hafnarinnar og
gera hana færa um að standa undir þeim miklu verkefnum sem eru framundan á næstu árum tengt hafnsækinni starfsemi í Helguvík“, segir Árni Sigfússon bæjarstjóri Reykjanesbæjar.