HSS
HSS

Fréttir

Miðvikudagur 13. september 2000 kl. 11:13

Samlíf í Reykjanesbæ

Samlíf hefur opnað ráðgjafaskrifstofu að Hafnargötu 29 í Reykjanesbæ. Ráðgjafi félagsins þar er Samúel Ingimarsson, sem nýlega er fluttur aftur í Reykjanesbæ eftir um 20 ára fjarveru. Samúel, sem hefur víðtæka reynslu af ráðgjafastarfi í tryggingum, mun bjóða fólki upp á ráðgjöf um sparnaðarleiðir og persónutryggingar félagsins. Eftir sem áður bjóða umboðsskrifstofur Sjóvá-Almennra og TM í Reykjanesbæ viðskiptavinum sínum upp á líftryggingar og sjúkdómatryggingar Samlífs, en ráðgjöf Samúels mun nýtast þessum viðskiptavinum vel, ekki síst vegna samtengingar þessara trygginga við sparnað. Samúel segir ákveðin merki um hugarfarsbreytingu á síðari árum í þessum efnum hjá fólki. „Viljinn til þess að spara með reglubundnum hætti er orðinn almennur og unga fólkið skynjar betur en áður það fjárhagslega öryggi sem fylgir réttum persónutryggingum“, segir Samúel. Samlíf er stærsta líftryggingafélag landsins, í eigu Sjóvá-Almennra trygginga, Tryggingamiðstöðvarinnar, ÍslandsbankaFBA, Búnaðarbankans og fimm af stærstu lífeyrissjóðum landsins. Það býður m.a. upp á Sparnaðarlíftryggingu, þar sem viðskiptavinir spara reglubundið en eru jafnframt líftryggðir. Einnig býður félagið frjálsan lífeyrissparnað en með mótframlagi ríkisins og atvinnurekenda, í samræmi við nýlega kjarasamninga, er þetta mjög hagstæð sparnaðarleið. Verðbréfasjóðir félagsins, sem eru ávaxtaðir hjá VÍB, Búnaðarbankanum Verðbréf og enska fjármálarisanum Henderson Investors, hafa verið að sýna mjög góða ávöxtun. Þannig skiluðu til dæmis 6 sjóðir félagsins meira en 20% nafnávöxtun á síðasta ári og sá gjöfulasti tæplega 80%. Á fyrstu 8 mánuðum þessa árs hafa 3 sjóðir þegar skilað 25-30 % nafnávöxtun. Hægt er að leita til Samúels á skrifstofuna en einnig mun hann sækja fólk heim eða halda vinnustaðafundi sé þess óskað. Öll ráðgjöf hans er að sjálfsögðu án allra fyrirfram skuldbindinga um viðskipti. Hægt er að ná í Samúel í síma 421 7400 eða í tölvupósti: [email protected] Nánari upplýsingar veitir: Ólafur Haukur Jónsson s. 569 5400 eða Samúel Ingimarsson s. 894 1626
Bílakjarninn
Bílakjarninn