Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Samkomulag við innviðaráðuneytið um stuðning við stjórnsýslu
Grindavíkurbær hefur gert samkomulag við innviðaráðuneytið um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag sveitarfélagsins.
Þriðjudagur 5. mars 2024 kl. 19:50

Samkomulag við innviðaráðuneytið um stuðning við stjórnsýslu

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, og Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík, undirrituðu í liðinni viku samkomulag um stuðning við stjórnsýslu og fjárhag sveitarfélagsins.

Með samkomulaginu eru rammaðar inn stjórnsýslu- og fjárhagsskyldur Grindavíkurbæjar, í ljósi þess forsendubrests sem orðið hefur í rekstri sveitarfélagsins. Meta skal rekstrarhæfi bæjarins og aðlaga reksturinn að gjörbreyttum aðstæðum, svo skilyrði sveitarstjórnarlaga um fjárhag og rekstur verði uppfyllt.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Lögum samkvæmt getur ráðherra gripið með beinum hætti inn í rekstur sveitarfélaga, leiki vafi á rekstrarhæfi þess. Ráðherra getur m.a. sett skilyrði um samdrátt í rekstri og fjármál. Við sérstakar aðstæður getur ráðherra svipt sveitarstjórn fjárforráðum sveitarfélags og skipað sérstaka fjárhaldsstjórn.

Rekstur Grindavíkurbæjar stóð traustum fótum áður en jarðhræringar hófust í grennd við bæinn. Skuldir voru óverulegar og handbært fé nam 1,5 milljarði króna í árslok 2022. Sú staða hefur gert Grindavíkurbæ kleift að standa við sínar skuldbindingar á undanförnum misserum, en samhliða hafa sjóðir bæjarins grynnkað.

Bæjarstjórn tekur alvarlega þá skyldu sína að laga reksturinn að tekjufalli, breyttri þjónustuþörf, væntri íbúaþróun og fleiri þáttum. Ábyrgur rekstur er forsenda þess að Grindavík muni blómstra hratt og vel að nýju þegar aðstæður leyfa, segir á vef bæjarins.