Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Samkeppniseftirlitið hefur rannsókn á gjaldtöku við flugstöð
Fimmtudagur 8. febrúar 2018 kl. 11:51

Samkeppniseftirlitið hefur rannsókn á gjaldtöku við flugstöð

Rannsókn er hafin á hárri gjaldtöku af hópferðabílum við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli. Gray Line kærði þessi áform Isavia þann 10. febrúar síðastliðinn og hefur fengið afrit af bréfi Samkeppniseftirlitsins til Isavia vegna málsins, dagsett 6. febrúar. Samkeppniseftirlitið segir í bréfinu að ljóst sé af frummati þeirra að fyrirhuguð gjaldtaka Isavia á hópferðafyrirtæki muni að óbreyttu leiða til mikillar verðhækkunar á farþegaflutningum til og frá Keflavíkurflugvelli. Vegna forsögu málsins hefur Samkeppniseftirlitið ákveðið að taka kæru Grey Line til meðferðar og hefja rannsókn.

Samkeppniseftirlitið segir í bréfinu að háttsemi Isavia komi til skoðunar samkvæmt 11. grein samkeppnislaga, sem felur í sér bann við markaðsráðandi stöðu, svo og eftir atvikum 54. grein EES-samningsins.

Public deli
Public deli

Isavia fær frest til 16. febrúar til þess að skýra sjónarmið sín og skila upplýsingum um gjaldtökuáformin. Samkeppniseftirlitið óskar meðal annars eftir öllum upplýsingum og gögnum sem Isavia býr yfir sem varða undirbúning og ákvarðanir um útboð á aðstöðu upp við flugstöðina, gjaldtöku á stæðum fyrir hópbifreiðar og vegna ákvörðunar um að undanskilja Strætó bs. frá gjaldtöku. Óskað er eftir því að fá alla tölvupósta, minnisblöð, útreikninga og Exelskjöl, fundargerðir, samskipti við aðila á markaði og opinbera aðila.

Ástæðan fyrir stuttum svarfresti er sú að gjladtakan á að hefjast þann 1. mars nk. og Grey Line fór fram á bráðabirgðarákvörðun um að stöðva hana. Samkeppniseftirlitið tekur fram í bréfi sínu að því sé heimilt að taka ákvarðanir til bráðabirgða ef sennilegt þykur að viðkomandi háttsemi fari gegn ákvæðum samkeppnislaga og raski samkeppni. Fyrir liggur, segir í bréfinu, að atvinnustarfsemi tengd flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli geti haft verulega sérstöðu í samkeppnislegu tilliti, sem geti falið sér rök fyrir hraðari málsmeðferð heldur en ella. Óskað er eftir sjónarmiðum Isavia til bráðabirgðaákvörðunar og spurt hvort til álita komi af hálfu ríkisfyrirtækisins að fresta gjaldtökunni meðan rannsóknin stendur yfir.

Forsaga málsins er sú að þann 1. desember sl. tilkynnti Isavia að gjaldtaka myndi hefjast þann 1. mars nk. af hópferðabílum sem sækja farþega á svokölluðum fjarstæðum við flugstöðina. Gjald fyrir minni bíla á að vera 7.900 kr. og fyrir stærri bíla 19.900 kr. Þessi áform kærði Grey Line til Samkeppniseftirlitsins á þeim forsendum að fyrirhuguð gjaldtaka væri margfalt hærri en eðlilegt gæti talist og stríddi alvarlega gegn hagsmunum neytenda. Grey Line benti á að við margar lþjóðlegar flugstöðvar í nágrannalöndunum væri ýmist ekkert gjald tekið af þessum hagkvæma og umhverfisvæna ferðamáta, eða mun lægra en Isavia áformaði.

Samkeppniseftirlitið rifjar upp í bréfinu til Isavia fyrri afskipti sín af áformum um háa gjaldtöku af akstri hópferðabíla með farþega til og frá flugstöðinni. Samtök sveitarfélaga á Suðurnesjum (SSS) voru þar að verki en Vegagerðin hafði veitt þeim einkaleyfi á akstri milli flugstöðvarinnar og Reykjavíkur. Í SSS ætlaði að taka til sín 40% af tekjum þeirra hópferðafyrirtækja sem gerðu tilboð í aksturinn, en það er svipað hlutfall og Isavia áformar að nú að hafa af þessum akstri. Samkeppniseftirlitið taldi áform SSS á sínum tíma stríða gegn hagsmunum neytenda, skerða samkeppni og leiða til hærri fargjalda. Vísaði Samkeppniseftirlitið til þess í áliti sínu nr. 1/2013 að Gray Line hefði hafið samkeppni við Kynnisferðir á þessari leið árið 2011 og hefði það leitt til lækkunar fargjalda. Svo fór að farið var að tilmælum Samkeppniseftirlitsins og hætt við einokunaráform Vegagerðarinnar og sveitarfélaganna.