Samkaup ósátt með óskýra upplýsingagjöf - milljónatjón í Nettó verslun
Framkvæmdastjóri hjá Samkaupum segir að óskað hafi verið eftir því að bjarga verðmætum í Nettó verslun félagsins í Grindavík síðustu daga en ekki haft erindi sem erfiði. Rafmagn er ekki í húsnæðinu og því liggur umtalsvert magn matvæla undir skemmdum.
„Vissulega eru töluverð verðmæti sem liggja í versluninni. Við fengum að fara með þrjár manneskjur í verslunina á mánudag og þær björguðu því sem bjargað varð á þeim tveimur tímum sem okkur var úthlutað. Enn er mikill meirihluti verðmætanna enn í versluninni og nú þegar rafmagn er farið af húsinu liggur umtalsvert magn matvæla undir skemmdum.
Við höfum óskað eftir því daglega að fá að fara aftur inn og halda áfram starfi við björgun verðmæta, en ekki haft erindi sem erfiði. Eflaust eru málefnalegar ástæður sem ráða forgangsröðun í málum sem þessum, en mér þætti betra ef við – og forsvarsfólk annarra fyrirtækja – væri betur upplýst af hálfu yfirvalda um það hvort og hvenær fara megi inn og einnig af hverju leyfi er ekki veitt.
Allir Grindvíkingar standa frammi fyrir gríðarlegu fjártjóni, einstaklingar, félög og fyrirtæki, og fyrir heimilin er áfallið sérstaklega þungbært. Við komumst bara í gegnum svona áföll ef við stöndum saman og skýrari upplýsingagjöf um það hverjir fái að fara inn og hvenær, væri til þess fallin að styrkja þessi samfélagslegu bönd,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa.