Samkaup íhugar flutning höfuðstöðvanna úr Reykjanesbæ
-erum ekki að hafna lóðaumsókn Samkaupa, eingöngu að óska eftir nánari upplýsingum, segir formaður bæjarráðs-
Meirihluti bæjarráðs Reykjanesbæjar hafnaði í fyrradag tillögu minnihlutans um lóðaúthlutun til Samkaupa, sem hefur haft áhuga að á að byggja nýjar höfuðstöðvar á Samkaupssvæðinu svokallaða við Krossmóa. Meirihlutinn segist ekki vera að hafna lóðaumsókninni heldur einungis að kalla eftir skýrari hugmyndum um nýtingu svæðisins. Samkaupsmenn íhuga nú að sækja um lóð í öðrum sveitarfélögum undir höfuðstöðvar og hefur Hafnarfjörður komið sterkt til greina, samkvæmt heimildum VF. Ekki náðist í forsvarsmenn Samkaupa í morgun til að fá þetta staðfest.
Minnihluti bæjarráðs lagði fram tillögu þess efnis að Samkaup yrði úthlutað lóð í Krossmóa í samræmi við framkomna umsókn. Því hafnaði meirihlutinn með þremur atkvæðum gegn tveimur atkvæðum minnihlutans. Lagði meirihlutinn fram bókun þar sem segir að með afgreiðslu bæjarráðs sé á engan hátt verið að útiloka umsóknina, heldur sé aðeins verið að kalla eftir skýrari hugmyndum um nýtingu svæðisins.
„Ég er mjög ósáttur við að verið sé að meðhöndla Samkaup með þessum hætti. Að menn þurfi að keppa um hyllina til að fá úthlutun er alveg ný aðferð við úthlutun lóða hér í sveitarfélaginu. Slíkt verklag hefur ekki viðgengist hingað til en skyndilega þurfa menn að taka það upp þegar Samkaup er að sækja um lóð. Þetta eru óskiljanleg vinnubrögð og rauninni stórfurðuleg,” sagði Guðbrandur Einarsson, fulltrúi A-listans í bæjaráði, í samtali við VF.
„Mér finnst það mjög leitt ef Samkaup er að íhuga að flytja höfuðstöðvar sínar úr sveitarfélaginu. Það eru mjög sterkar líkur á því að þeir geti fengið þessa lóð,“ sagði Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs, í samtali við VF í morgun.
„Það þótti hins vegar eðlilegt að auglýsa og kalla eftir hugmyndum. Einnig að fá upplýsingar um það hvaða starfssemi eigi að vera þarna því það hefur ekki komið fram í þeim umsóknum sem lagðar hafa verið fram hjá Skipulagsnefnd. Mér finnst það leitt ef Samkaupsmenn eru að taka þessu sem höfnun því svo er alls ekki. Það er eingöngu verið að kalla eftir nánari útfærslu,“ sagði Böðar.
Böðvar gat þess ennfremur að margir hafi lýst áhuga á þessari lóð og því væri það rétt og eðilegt að allir möguleikar yrðu skoðaðir. Umrætt svæði væri orðið eftirsótt og þar væri nýr miðbær að myndast.
Böðvar segir aðspurður að hér sé ekki um nýja aðferð að ræða við úthlutun lóða. „Þetta er ekkert ósvipað því og þegar við auglýstum eftir áhugasömum aðilum sem vildu koma að uppbyggingu Nesvalla með Reykjanesbæ. Sú lóð sem hér um ræðir hefur ekki verið deiliskipulögð ennþá en margir lýst áhuga á að fá. Samkaup er traust og öflugt fyrirtæki sem hefur verið í sveitarfélaginu lengi og vonandi náum við saman. Þetta er engu að síður sú aðferðarfræði sem Skipulagsnefnd lagði til og þótti eðlileg, þ.e. að lóðin yrði auglýst.“
Böðvar var inntur eftir því hvort t.d. KFC, sem byggt hafa á umræddu svæði, hafi verið gert skylt að skila inn svipuðum hugmyndum eins og nú er kallað eftir hjá Samkaup.
Böðvar segir að svo hafi ekki verið. „Á þeim tíma þá þótti okkur eftirsóknarvert að sterkt og öflugt fyrirtæki af Reykjavíkursvæðinu vildi koma hingað með starfsemi í upphafi þeirrar uppbyggingar sem þá var að hefjast í sveitarfélaginu. Um var að ræða starfsemi sem okkur fannst eiga vel heima á þessu svæði. Á sama hátt höfum við áhuga á að vita hvaða starfsemi á að fara fram í því fimm hæða húsi sem Samkaup hefur áhuga á byggja þarna, en það hefur ekki komið fram í þeim umsóknum hafa verið lagðar fram fyrir Skipulagsnefnd,“ sagði Böðvar.