Samkaup hlutu Menntasprota atvinnulífsins
Samkaup hf. hlutu Menntasprota atvinnulífsins en verðlaunin voru veitt í Hörpu í tilefni af Menntadegi atvinnulífins. Þetta er í sjöunda sinn sem verðlaunin eru veitt.
„Þau hafa sett sér metnaðarfulla fræðslustefnu og þetta hefur sannarlega skilað miklum árangri og þess vegna hljóta þau þessi verðlaun,“ sagði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra eftir að hafa afhent fulltrúum Samkaupa verðalaunin. „Þið eruð vel að þessu komin,“ skaut Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands inn í.
Í rökstuðningi dómnefndar kemur fram að Samkaup sé til fyrirmyndar og að stjórnendur fyrirtækisins hafi tekið markvissa ákvörðun um nýtt upphaf í fræðslu- og þekkingarmálum innan fyrirtækisins. Dómnefnd trúir því einnig að skuldbinding fyrirtækisins í þessum efnum sé komin til að vera. Samkaup hefur sett fram skýr markmið með átaki sínu og sérstök áhersla lögð á hæfni og færni starfsfólks á öllum sviðum reksturins samkvæmt dómnefndinni. Jákvætt viðhorf stjórnenda, mikil starfsánægja, gott almennt viðhorf og möguleikar fyrir nýtt starfsfólk og viðskiptavini félagsins er einnig hrósað. Sérstakur vettvangur símenntunar meðal starfsfólks Samkaupa, sem fékk nafnið „Fræðsluskot Kaupmannsins“ er einnig mikið hampað af dómnefndinni. Tilgangurinn með verkefninu er að dýpka þekkingu starfsfólks Samkaupa. Fræðsluskot Kaupmannsins eru stutt og hnitmiðuð í eðli sínu og kennd á mismunandi vegu til þess að geta aðlagast þörfum og óskum bæði fyrirtækisins og starfsfólks hverju sinni. Samkaup hefur einnig sett á dagskrá að keyra upp sérstakt stjórnendanám í samstarfi við COOP í Danmörku. Þar er stjórnendunum boðið upp á leiðtogaþjálfun ásamt sérstökum vinnustofum stjórnenda.
Dómnefndin samanstendur af Guðný B. Hauksdóttur, framkvæmdastjóra mannauðsmála hjá Alcoa Fjarðarál, Magneu Þórey Hjálmarsdóttur, framkvæmdastjóra Icelandair Hotels, og Geirs Kristins Aðalsteinssonar, Mannauðsstjóri Hölds. Helstu viðmið vegna menntasprota ársins í ár eru að lögð sé stund á nýsköpun, menntun og fræðslu, innan fyrirtækisins og/eða í samstarfi við önnur fyrirtæki. Einnig er horft til samstarfs fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækisins samkvæmt tilkynningu frá dómnefndinni.
„Samkaup leggur ríka áherslu á að styðja starfsfólk sitt til áframhaldandi starfsþróunar og er eitt af megin markmiðum fyrirtækisins að starfmenn Samkaupa fái tækifæri til að stunda nám samhliða vinnu sem opnar tækifæri til frekari starfsþróunar innan fyrirtækisins og utan þess,“ segir Gunnur Líf Gunnardóttir, mannauðsstjóri Samkaupa. „Við hjá Samkaupum erum mjög stolt af þessum verðlaunum enda höfum við lagt mikla vinnu í skipulagða og markvissa fræðslu innan fyrirtækisins. Samkaup reka 60 verslanir víðs vegar um landið og það starfa tæplega 1.300 manns hjá okkur í 660 stöðugildum. Það er því mikið verk að stuðla að þekkingaröflun fyrir allt þetta fólk og að fá verðlaun fyrir vel unnin störf skiptir okkur miklu máli.“
Styrking á innviðum og á fræðslu og menntun starfsfólks hefur verið sérstakt áhersluverkefni hjá Samkaupum síðustu ár. Mikill kraftur hefur verið settur í mannauðssvið félagsins og frekari styrking þess sviðs er ein af lykiláherslum í stefnumótun félagsins til framtíðar. Áhersla er lögð á skýr markmið, fast skipulag, gott utanumhald, aukna þátttöku starfsmanna í fræðslu og skipulagða skráningu á allri starfsþróun. Fræðslan er í stöðugri þróun en mikill kraftur hefur farið í hana undanfarið ár og mun hún halda áfram að styrkjast og eflast árið 2020.
Haldið er vel utan um starfsfólk sem sækir sér fræðslu og menntun, um leið og starfsfólk er hvatt til að auka við þekkingu sína. Þá hefur Samkaup verið leiðandi í þróun og mótun á Fagnámi fyrir verslun og þjónustu, ásamt því að fara nýjar leiðir í eflingu fræðslu innan fyrirtækisins.
Starfsfólki Samkaupa stendur meðal annars til boða að fara í raunfærnimat, þar sem það fær tækifæri til að fá reynslu sína og þekkingu sem það hefur aflað sér í gegnum starf sitt metna til framhaldsskólaeininga. Að því loknu stendur því þrjár leiðir til boða; ljúka 30 eininga vinnustaðaþætti, ljúka 90 einingum í Fagnámi verslunar og þjónustu, sem gildir einnig sem einingar upp í stúdentspróf, eða láta staðar numið.
„Þó við höfum fengið verðlaunin í ár stefnum að því að bæta okkur enn frekar í menntamálum á þessu ári. Í haust stefnum við til dæmis að því að setja af stað leiðtogaþjálfun Samkaupa sem er hluti af endurmenntun stjórnenda“ segir Gunnur Líf.
Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka Iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífins.