Samkaup hleypir af stað velferðarþjónustu fyrir starfsfólk
Samkaup hleypti nýlega af stað sérstakri velferðarþjónustu sem er ætlað að stuðla að auknum lífsgæðum starfsmanna. Markmiðið með velferðarþjónustunni er að auka færni starfsmanna fyrirtækisins til að takast á við óvænt áföll og erfiðleika ásamt því að auka ánægju starfsmanna og öryggi þeirra.
„Rannsóknir hafa sýnt fram á að stór hópur sérstaklega ungs fólks glími við einmannaleika og depurð. Sú staðreynd m.a. kveikti á þeirri hugmynd að ýta úr vör velferðarþjónustunni okkar. Taka á þessu málefni og gera það sýnilegt og aðgengilegt öllum. Fara skrefinu lengra og gera meira fyrir starfsmenn okkar en nokkurt annað fyrirtæki á Íslandi. Þetta er komið til að vera og vonandi tækifæri til að breyta því hvernig fyrirtæki hugsa um fólkið sitt.,“ segir Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa.
Starfsfólki Samkaupa býðst fjölbreytt úrval af þjónustu sem unnin er af Heilsuvernd. Starfsmaður hefur samband við Heilsuvernd sem svo vísar á viðeigandi sérfræðing. Samkaup greiðir síðan reikninginn. Starfsmönnum bjóðast allt að 6 klukkutímar á ári.
„Starfsfólki okkar býðst ótrúlega fjölbreytt þjónusta. Við vitum að það eru margir þættir sem geta haft áhrif á fólk utan vinnunnar og viljum geta rétt út hjálparhönd þegar fólk finnur að það þurfi þess hvort sem það sé þjónusta sálfræðings, lögfræðings, næringafræðings, markþjálfa, fjármálaráðgjöf, fjölskylduráðgjöf, sérfræðilækna, lækna og svo framvegis,“ segir Gunnur.
Samkaup reka 60 verslanir víðsvegar um landið. Helstu verslanamerki Samkaupa eru Nettó, Kjörbúðin, Krambúðin, Háskólabúðin og Iceland.
Gunnur Líf Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðssviðs Samkaupa.