Samkaup 20 ára

Bygging hússins tók rúmt ár frá því fyrsta skóflustungan var tekin 17. júlí 1981 en framkvæmdir hófust síðan 5. september sama ár og komu fjölmargir iðnaðarmenn og aðilar að byggingunni en byggingameistari hússins var Sveinn Ormsson. Fyrsti verslunarstjórinn var Kristján Hansson en hann lést fyrir nokkrum árum. Hann var jafnframt byggingarstjóri Samkaupa. Í viðtali við Kaupfélagsblaðið sagði Kristján að ýmsar breytingar yrðu við opnunun Samkaupa. Svo segir orðrétt úr viðtalsgrein við Kristján: “Hann sagði að verð á matvöru yrði ætíð á sem hagstæðustu verði og lögð yrði áhersla á að vöruúrval yrði sem mest. Þá sagði hann að kaupfélagið myndi bjóða ýmsar vörur á tilboðsverði. Hann lagði áherslu á að gott kjötborð yrði haft í versluninni og í því sambandi hefði verið ráðinn mjög fær matreiðslumaður og myndi hann veita viðskiptavinum ráðgjöf varðandi kjötvörukaup". Og meðal fleiri nýjunga sem Suðurnesjamenn voru ekki vanir á þessum árum má nefna sjálfsafgreiðslu á ávöxtum og grænmeti. Það er því óhætt að segja að tímarnir hafi breyst mikið eins og reyndar margt hjá Samkaup á tveimur áratugum.
Á sama tíma og Samkaup opnaði fluttist rekstur kjötvinnslu Kaupfélags Suðurnesja í nýtt hús Samkaupa og fékk einnig á sama tíma nafnið Kjötsel. Birgir Scheving sem hefur veitt henni forstöðu síðan 1962 er enn á sama stað!
Sjö verslunarstjóra hafa gegnt því starfi á tuttugu árum Samkaupa. Sá fyrsti var eins og fyrr greinir Kristján Hansson (1982-84) en síðan komu Magnús Jónsson (1985-19888), GYlfi Kristinsson (1989-1992), Axel Nikulásson (1993-1994), Sturla Eðvarðsson (1994-1999). Núverandi verslunarstjórar eru Kristján Friðjónsson og Hörður Sigfússon en þeir hófu störf árið 2000.