Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Samið um raforkuflutninga fyrir kísilver í Helguvík
Frá undirskrift samnings Landsnets og United Silikon í morgun. Guðmundur Ingi Ásmundsson, aðstoðarforstjóri Landsnets, Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets, Joseph Dignam, stjórnarmaður hjá United Silicon og Auðunn Helgason, stjórnarmaður hjá United Si
Miðvikudagur 19. mars 2014 kl. 12:11

Samið um raforkuflutninga fyrir kísilver í Helguvík

Áætluð aflþörf verksmiðjunnar er 35 megavött.

Forstjóri Landsnets undirritaði í dag samkomulag við United Silicon hf. um raforkuflutninga vegna kísilvers í Helguvík. Áætluð aflþörf verksmiðjunnar er 35 megavött (MW) og miðast samkomulagið við að starfsemi hennar hefjist í ársbyrjun 2016. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsneti.

United Silicon hf er nýtt félag, stofnað af hópi aðila í evrópska kísilmálmiðnaðinum, sem á frumkvæði að því að setja upp nýja kísilmálmverksmiðju hérlendis til að mæta vaxandi eftirspurn viðskiptavina sinna í Evrópu. Félagið hefur undirbúið byggingu kísilversins í Helguvík og keypti þróunarfélagið Stakksbraut 9 ehf. sem á lóðina í Helguvík. Umhverfismat hefur þegar verið unnið fyrir verkefnið og var það samþykkt af Skipulagsstofnun í maí 2013.

Samkomulag United Silikon við Landsnet miðast við að orkuafhending hefjist í febrúar árið 2016 og að starfsemin verði komin á fullt tveimur mánuðum síðar. Skal Landsnet tryggja orkuflutninga til kísilversins með tengingu við meginflutningskerfið á Fitjum á Reykjanesi. Undirbúningur og hönnun vegna tengingar kísilversins í Helguvík við flutningskerfið hefst hjá Landsneti í ár og er áætlað að framkvæmdir byrji strax á næsta ári.

„Það sem öðru fremur gerir okkur kleift að bregðast við beiðni United Silikon með svo stuttum fyrirvara er sú staðreynd að við höfum unnið að undirbúningi tengingar iðnaðarsvæðisins í Helguvík á undanförnum árum. Nú hyllir einnig undir að framkvæmdir hefjist við Suðurnesjalínu 2, sem gjörbreytir afhendingaröryggi raforku á Reykjanesi,“ segir Þórður Guðmundsson, forstjóri Landsnets.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Samkomulagið við Landsnet er mikilvægur áfangi í áformum okkar um að byggja kísilver í Helguvík. Gangi þau öll eftir verður starfsemin komin á fullan skrið í apríl 2016. Framleidd verða 20 þúsund tonn af kísilmálmi og því fylgja um 65 framtíðarstörf á Reykjanesi, að ótöldum þeim störfum sem verða til vegna kaupa á þjónustu og orku,“ segir Joseph Dignam, stjórnarmaður hjá United Silicon.

Áætlaður kostnaður við tengingu kísilvers United Silicon við meginflutningskerfi Landsnets hljóðar upp á um einn milljarð króna.