Samið um aukna þjónustu
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, og Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, undirrituðu í dag þjónustusamning heilbrigðis-og tryggingamálaráðuneytisins og Bláa Lónsins. Þjónustusamningurinn er til sex ára og gildir til ársloka 2012.
Bláa lónið sinnir því meginverkefni samkvæmt þjónustusamningnum að veita sjúkratryggðum einstaklingum með psoriasis- og exemsjúkdóma meðferð við sjúkdómum sínum. Meðferðin sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið tryggir sjúklingunum með samningnum felst í böðun í meðferðarlóni, ljósameðferð og húðmeðferð. Hjúkrunarfræðingur hefur umsjón með ljósameðferð ásamt almennri umönnun og ráðgjöf, en læknir, sérmenntaður í húðsjúkdómum, hefur yfirumsjón með meðferðinni.
Samkvæmt þjónustusamningnum greiðir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið tæpar 45 milljónir króna á ári að hámarki á samningstímanum, 34,4 milljónir fyrir meðferð, 9,7 milljónir vegna daggjalda og 390 þúsund krónur vegna fylgdarmanna, en þegar í hlut eiga börn eða alvarlega fatlaðir einstaklingar er fylgdarmanni viðkomandi heimiluð dvöl á meðferðartímanum. Heildarfjárhæðin er á áætluðu meðalverðlagi ársins 2007 og tekur breytingum í samræmi við almennar verðlagsforsendur fjárlaga í upphafi hvers árs, í fyrsta sinn 1. janúar 2008.
Við sama tækifæri undirrituðu heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra og forstjóri Bláa Lónsins samkomulag um rannsóknastyrk til fjögurra ára. Samkvæmt samkomulaginu veitir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið Bláa Lóninu styrkinn til rannsókna og alþjóðlegrar markaðssetningar húðmeðferða við psoriasis- og exemsjúkdóminn. Styrkinn skal nýta til að greiða kostnað vegna rannsókna og markaðssetningar, en félagið hefur sett sér það markmið að vera leiðandi í húðmeðferðum við psoriasis- og exemsjúkdómnum á alþjóðavettvangi. Fjárhæð styrksins er 25 milljónir króna á ári í fjögur ár. Styrkurinn greiðist á árunum 2006 til 2009 og heildarstyrkfjárhæðin er 100 milljónir króna á samningstímanum.
Grímur sagði við þetta tækifæri að rannsóknirnar væru mikilvægt framhald á þeim rannsóknum sem þegar hafa verið gerðar. “Rannsóknirnar eru lykill að því að meðferðin hljóti alþjóðlega viðurkenningu,” sagði Grímur jafnframt.
Niðurstöður rannsókna benda til að reglubundin böð í jarðsjó Bláa lónsins ásamt ljósaböðum sé í mörgum tilvikum árangursríkari en annars konar meðferð við þessum sjúkdómi. Bláa Lónið vinnur samkvæmt rannsóknaráætlun sem miðast að því að auka enn frekar þekkingu á heilsubætandi eiginleikum meðferðar í þágu sjúklinga og um leið að styrkja samkeppnishæfni íslenskrar heilbrigðisþjónustu á alþjóðavettvangi.
Efri mynd: Gímur Sæmundsen, Siv Friðleifsdóttir og Árni Matthiesen undirrita samningana í gær. Ljósm: elg
Neðri mynd: Frá heilsulindinni þar sem öll aðstaða þykir framúrskarandi.