Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Samið um aðkomu Reykjanesbæjar að fiskeldi Samherja á Reykjanesi
Frá undirritun samkomulagsins í dag. Á myndinni eru fulltrúar Reykjanesbæjar og Samherja Fiskeldis. VF/Hilmar Bragi
Þriðjudagur 18. júní 2024 kl. 16:13

Samið um aðkomu Reykjanesbæjar að fiskeldi Samherja á Reykjanesi

Samherji fiskeldi ehf. og Reykjanesbær undirrituðu í dag samkomulag um aðkomu sveitarfélagsins að uppbyggingu Samherja fiskeldis ehf. á landeldisstöð í Auðlindagarði HS Orku á Reykjanesi. Fiskeldisstöðin samanstendur af seiðastöð, áframeldisstöð og vinnsluhúsi ásamt stoð- og tæknibyggingum. Eldisstöðin miðast við laxeldi en þó er gert ráð fyrir möguleikanum að í stöðinni geti einnig verið bleikju- og regnbogasilungseldi.

Í umhverfismatsskýrslu verkefnisins kemur fram að aðstæður í Auðlindagarðinum séu afar hagstæðar hvað snertir aðgengi að jarðsjó, ylsjó og rafmagni. Allt frárennsli stöðvarinnar verður hreinsað til að lágmarka álag á viðtaka. Samherji fiskeldi stefnir á að framleiðslugeta nýrrar eldisstöðvar verði 40.000 tonn á ársgrundvelli. Til framleiðslunnar áætlar félagið að nota að hámarki 30.000 l/s af jarðsjó, um 100 l/sek af ferskvatni og um 3.200 l/s af ylsjó frá Reykjanesvirkjun sem í dag rennur að hluta ónýttur til sjávar.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ráðgert er að framkvæmdir við eldisgarðinn hefjist þegar fjármögnun og öllum leyfismálum tengdum framkvæmdinni er lokið og verður þeim skipt í þrjá áfanga. Framkvæmdir við fyrsta áfanga taka um tvö ár en heildarframkvæmdatími er um tíu ár.

Við uppbyggingu landeldisstöðvar af þessari stærðargráðu verður til mikil þekking og reynsla tengd fiskeldi á landi og nýtingu jarðhita við starfsemina. Í eldisstöðinni koma til með að starfa um 100 starfsmenn með mismunandi menntun og reynslu þegar stöðin verður komin í fullan rekstur, en á framkvæmdatíma má jafnframt gera ráð fyrir að 300-400 starfsmenn vinni við byggingu stöðvarinnar, þ.e. iðnaðarmenn, starfsmenn verktaka og tæknimenn. Þá eru ótalin afleidd störf, bæði á framkvæmdatíma og eftir að rekstur hefst.