Bygg
Bygg

Fréttir

Samgönguvika í Garði hefst á fimmtudaginn
Þriðjudagur 14. september 2010 kl. 14:11

Samgönguvika í Garði hefst á fimmtudaginn


Sveitarfélagið Garður tekur nú í þriðja sinn þátt í Evrópsku samgönguvikunni en hátt í 2000 sveitarfélög eru þátttakendur að þessu sinni. Markmið vikunnar eru þau að vekja athygli á mikilvægi þess að ferðast um á vistvænan máta svo sem með því að ganga, hjóla og nota almenningssamgöngur. Enn fremur er með vikunni lögð áhersla á að hvetja sveitarfélög og borgir til þess að skapa leiðir og auka möguleika íbúa á vistvænum samgöngum.

Í ár er vikan auglýst í Garði undir kjörorðunum: Garðbúar, ferðumst um á eigin orku!
Í þeim felst ákveðin áskorun til bæjarbúa um að velja hollari og ódýrari kostinn þegar völ er á. Umhverfisnefnd hefur í samstarfi við bæjarstjóra, tómstundafulltrúa, skólastjóra leik- og grunnskóla og lögreglu skipulagt dagskrá þessarar viku en henni lýkur með bíllausa deginum í Evrópu 22. september.

Hægt er að skoða dagskrá á vefsíðu Sveitarfélagsins Garðs á www.svgardur.is og á sameiginlegri heimasíðu þeirra íslensku sveitarfélaga sem taka þátt að þessu sinni, www.samgonguvikan.is en síðan verður opnuð fimmtudaginn 16. sept.  

Bílakjarninn
Bílakjarninn