Samgönguráðherra: „Takið upp skófluna!“
Samgönguráðherra, Sturla Böðvarsson, tilkynnti á fjölmennum boragrafundi í Stapa, sem enn stendur yfir, að sá hluti Reykjanesbrautar sem væri eftir að tvöfalda frá Fitjum að tvöföldun væri boðinn út í einum áfanga á vormánuðum. Gefur þessi yfirlýsing Suðurnesjamönnum og öðrum áhugamönnum um tvöföldun Reykjanesbrautar ástæðu til að gleðjast yfir því að nú hyllir undir tvöfalda braut milli Hafnarfjarðar og Reykjanesbæjar.
Leitast yrði eftir að fá sem hagstæðast tilboð og munu verklok velta á því hvernig það gengur, en hann hvatti Steinþór Jónsson og félaga hans í áhugahópnum um örugga Reykjanesbraut að taka upp skófluna góðu því hennar verður þörf innan tíðar.Ráðherra fékk dynjandi lófaklapp að loknu máli sínu en á meðal gesta voru m.a. fjölmargir alþingismenn sem láta sig málefni Reykjanesbrautar varða.
Nánari fréttir af fundinum innan tíðar...
VF-myndir/Þorgils Jónsson