Samgönguráðherra sendir Reyknesingum hamingjuóskir
Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, sendir Reyknesingum hamingjuóskir á vefsíðu sinni nú í kvöld með hagstæð tilboð í tvöföldun Reykjanesbrautar. Þar lýsir Sturla ánægju með þau tilboð sem bárust og vonast til að þessi hluti tvöföldunarinnar gangi jafn vel og sá fyrri. Þá segir Sturla: „ Það er ástæða til að fagna þessum hagstæðu tilboðum því að nú sjái menn fram á að þessari mikilvægu umferðaröryggisframkvæmd verði lokið“.
Pistill Sturlu er svohljóðandi: „Að öllu jöfnu er ég ekki viðstaddur opnun tilboða í verk sem Vegagerðin hefur boðið út, en í dag var ég viðstaddur opnun tilboða í tvöföldun Reykjanesbrautar.
Það er ánægjulegt frá því að segja að mjög hagstæð tilboð bárust í verkið. Það lægsta var frá Jarðvélum ehf. og hljóðaði upp rúmar 1.175 milljónir sem eru rúm 75% af kostnaðaráætlun, næst lægsta tilboðið barst frá Háfelli ehf.
Það er ástæða til að fagna þessum hagstæðu tilboðum því að nú sjái menn fram á að þessari mikilvægu umferðaröryggisframkvæmd verði lokið.
Ég óska Reyknesingum og öllum þeim sem um brautina fara til hamingju og vona að þessi hluti tvöföldunarinnar gangi jafn vel og sá fyrri“.
Myndin: Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra tekur fyrstu skóflustunguna 11. janúar 2003.