Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sameinað sveitarfélag tekið til starfa
Mánudagur 11. júní 2018 kl. 12:10

Sameinað sveitarfélag tekið til starfa

Sameining sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðisbæjar hefur tekið gildi en nýtt sveitarfélag varð formlega til í gær, sunnudaginn 10. júní. Nýtt sveitarfélag hefur ekki fengið nafn, en ný bæjarstjórn mun fjalla um það og taka ákvörðun um hvert heiti þess verður. Þangað til verður til bráðabirgða notast við heitið „Sameinað sveitarfélag Garðs og Sandgerðis“. 
 
Bæjarstjórn í sameinuðu sveitarfélagi mun koma saman til fyrsta fundar innan 14 daga frá stofnun sveitarfélagsins. 
 
Ný bráðabirgða heimasíða fyrir hið sameinaða sveitarfélag mun birtast á næstu dögum, en heimasíður sveitarfélaganna Garðs og Sandgerðisbæjar verða opnar út árið 2018. Tölvupóstföng starfsmanna verða óbreytt þar til nýtt nafn sveitarfélagsins hefur verið ákveðið.
 
Reglur, gjaldskrár og samningar Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs gilda þar til ný sveitarstjórn hefur afgreitt breytingar. Íbúar verða því ekki varir við miklar breytingar á þessum tímamótum.
 
Starfsfólk hefur að undanförnu unnið að undirbúningi þess að sameinað sveitarfélag taki til starfa.  Í dag, mánudaginn 11. júní, verða bæjarskrifstofurnar lokaðar vegna sameiginlegra funda starfsfólks, þar sem m.a. verður tekið í notkun skjalakerfi fyrir hið nýja sveitarfélag. Jafnframt fer fram fundur þar sem undirbúningsstjórn sameiningarinnar afhendir nýrri bæjarstjórn verkefnið með tillögum um næstu skref. Allt starfsfólk gömlu sveitarfélaganna er nú orðið starfsfólk Sameinaðs sveitarfélags Garðs og Sandgerðis.
 
Hið nýja sveitarfélag hefur fengið kennitöluna 550518-1200 og sveitarfélagsnúmerið 2510. Símanúmer eru óbreytt en unnið er að sameiningu símkerfa og upptöku nýs símanúmers.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024