HSS
HSS

Fréttir

Sameiginlegur skipulags- og byggingafulltrúi í Garði og Sandgerði
Föstudagur 6. janúar 2012 kl. 10:17

Sameiginlegur skipulags- og byggingafulltrúi í Garði og Sandgerði

Drög að samstarfssamningi vegna sameiginlegs skipulags- og byggingafulltrúa fyrir sveitarfélögin Garð og Sandgerði voru lögð fyrir síðasta bæjarstjórnarfund í Garði.

Samkvæmt samningnum mun kostnaður Garðs vegna embættis byggingafulltrúa lækka lítillega á ársgrundvelli og viðvera byggingafulltrúa aukast úr 48 klst. á mánuði í 80 klst. auk þess sem yfirtíð og kostnaður vegna funda utan hefðbundins vinnutíma verður hluti af launum byggingafulltrúa. Kostnaður vegna sameiginlegra funda byggingafulltrúa verður einnig lægri þegar sá kostnaður deilist á tvö sveitarfélög.

Viðvera og þjónusta skrifstofu byggingafulltrúa við bæjarbúa eykst því um 45% án kostnaðarhækkunar, segir í fundargerð bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn Garðs vill því bóka þakklæti sitt til Páls S. Pálssonar og Verkfræðistofunnar fyrir afar farsælt og gott samstarf sl. 15 ár sem mun þó halda áfram með öðrum verkefnum. Verkfræðistofa Suðurnesja mun verða aðili að samstarfi Sandgerðis og Garðs um starf byggingafulltrúans og standa á bak við hann sem faglegur bakhjarl. Gert er ráð fyrir því að sameiginlegur byggingafulltrúi Garðs og Sandgerðis taki til starfa 1. febrúar 2012.

Bæjarstjóra var falið að ganga frá samningnum við Sandgerðisbæ og leggja fyrir bæjarráð. Samningurinn var samþykktur með 5 atkvæðum D- og L-lista en fulltrúar N-lista sátu hjá.


Bílakjarninn
Bílakjarninn