Bygg
Bygg

Fréttir

Salka sökk í Sandgerðishöfn eftir árekstur
Sunnudagur 23. október 2011 kl. 19:38

Salka sökk í Sandgerðishöfn eftir árekstur

Báturinn Salka GK-97, sem er 33 tonna trébátur, sökk í Sandgerðishöfn í dag. Slökkvilið Sandgerðis fékk tilkynningu upp úr klukkan tvö í dag um að mikill leki væri kominn að bátnum og er slökkviliðið kom á vettvang var báturinn sokkinn.

Orsök óhappsins er talin vera sú að stálbáturinn Rán GK-91 hafi rekið stefni í síðu bátsins þegar hann var að leggjast að. Salka sökk fljótlega eftir það.

VF-Mynd frá Sandgerðishöfn.

Bílakjarninn
Bílakjarninn