Sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum
Guðbjörn Guðbjörnsson sagði sig úr Sjálfstæðisflokknum í gær. Guðbjörn hefur um árabil gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn í Reykjanesbæ og Suðurkjördæmi.
„Ég sagði mig úr Sjálfstæðisflokknum að lokinn afgreiðslu tillögu um að Sjálfstæðisflokkurinn vildi draga ESB umsóknina til baka. Þar með hætti ég í flokksráði Sjálfstæðisflokksins, stjórn fulltrúaráðs Reykjanesbæjar, stjórn Sjálfstæðisfélagsins Njarðvíking og kjördæmisráði flokksins í Suðurkjördæmi. Ég hef hins vegar alls ekki breyst í sósíaldemókrata vegna þessa, heldur er áfram sami frjálslyndi miðju-hægri maðurinn og ég hef alltaf verið,“ segir Guðbjörn í athugasemdafærslu sinni á fréttavef Eyjunnar í gærkvöldi.
„Mér finnst þessi lýsing Árna Páls bara ansi góð,“ segir Guðbjörn ennfremur um gagnrýni félagsmálaráðherra Samfylkingar á forystu Sjálfstæðisflokksins. Árni Páll segir Sjálfstæðisflokkinn hafa stimplað sig út úr íslenskum stjórnmálum og sé nú einangraður öfga – hægriflokkur.