Tónlistarskóli RNB skólaslit
Tónlistarskóli RNB skólaslit

Fréttir

Saga Keflavíkur og Njarðvíkur á stafrænt form
Mánudagur 11. nóvember 2024 kl. 09:42

Saga Keflavíkur og Njarðvíkur á stafrænt form

Í tilefni 30 ára afmælis Reykjanesbæjar hefur Hermann Valsson unnið að því að koma bókum um sögu Keflavíkur og Njarðvíkur í stafrænt form. Efni bókanna nær frá árunum 1766 til 1994 og inniheldur sögur sem segja frá þróun og samfélagsbreytingum í Keflavík og Njarðvík í gegnum árin, frá upphafi byggðar til þess að bæirnir sameinuðust í Reykjanesbæ.

Bækurnar hafa verið skannaðar með OCR-tækni, sem gerir stafrænu útgáfuna leitarhæfa og lesendum kleift að fletta auðveldlega í gegnum efnið með möguleika á að leita að tilteknum orðum og setningum. Hermann hefur fengið leyfi til að birta efnið opinberlega, og er það nú aðgengilegt á heimasíðu Reykjanesbæjar.

Hér er hægt að nálgast stafrænt afrit af bókunum:

  1. Saga Keflavíkur 1949 til 1994
  2. Saga Njarðvíkur eftir Kristján Sveinsson
  3. Saga Keflavíkur 1766 til 1890
  4. Saga Keflavíkur frá 1920 til 1949
Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk
Kalka grenndarstöðvar
Kalka grenndarstöðvar