Miðvikudagur 17. ágúst 2005 kl. 10:21
Saga Gerðaskóla rakin í máli og myndum

Bókin
Gerðaskóli í 130 ár er komin út, þar er rakin saga Gerðaskóla í máli og myndum frá árinu 1872 til 2002. Bókin er ætluð til kennslu í Gerðaskóla en jafnframt er hægt að nálgast eintak gegn vægu verði á Bæjarskrifstofunni, Byggðasafninu og í Gerðaskóla. Einar Georg Einarsson sá um efnisöflun og ritstýrði einnig bókinni.