Fréttir

Safnahelgi á Suðurnesjum frestað
Mánudagur 9. mars 2020 kl. 16:39

Safnahelgi á Suðurnesjum frestað

Ákveðið hefur verið að fresta Safnahelgi á Suðurnesjum um óákveðinn tíma vegna COVID-19 veirunnar. Safnahelgi átti að fara fram helgina 14. og 15. mars næstkomandi þar sem öll sveitafélög á Suðurnesjum veita ókeypis aðgang í öll söfn á svæðinu.

Í fyrra sóttu um 10.000 manns viðburðinn og því brugðu menningarfulltrúar Reykjanesbæjar, Grindavíkur, Voga og Suðurnesjabæjar á það ráð að fresta Safnahelgi að sinni. Ekki þótti ráðlagt að stefna fólki saman þegar svo mikið óvissuástand ríkir í þjóðfélaginu.

Framúrskarandi fyrirtæki 2026
Framúrskarandi fyrirtæki 2026

Mikil hefð hefur myndast fyrir Safnahelgi sem haldin hefur verið ellefu sinnum og er hætt við því að gestir munu ekki njóta þeirra menningaviðburða sem í boði eru eins og best verður á kosið. Ný dagsetning verður því kynnt síðar en hægt verður að fylgjast með stöðu mála á vefsíðunni safnahelgi.is.

HSS bólusetning 1100
HSS bólusetning 1100