Safetravel hleypt af stokkunum í Krýsuvík
Í hádeginu í dag skrifuðu 16 aðilar, er koma að ferðaþjónustu á einn eða annan hátt, undir samstarfssamning í Krýsuvík um öryggismál ferðamanna.
Fjöldi ferðamanna sem ferðast um landið hefur verið að aukast með hverju árinu. Tölur frá Ferðamálastofu sýna að 90% íslendinga ferðuðust innanlands síðasta sumar og um 500.000 erlendir ferðamenn heimsóttu landið. Bjartsýnustu spár segja að árið 2018 geti fjöldi erlendra ferðamanna verið kominn í eina milljón. Áætlað er að tekjur af erlendum ferðamönnum hér á landi hafi verið 155 milljarðar árið 2009 sem er um 21% raunaukning frá árinu á undan og er ferðaþjónustan nú orðin ein af stærstu gjaldeyrisskapandi greinum þjóðarinnar með um 18% hlutdeild.
Ef banaslysatölur eru skoðaðar nokkur ár aftur í tímann má sjá all mörg banaslys hafa orðið hjá erlendum ferðamönnum hér á landi. Slys sem eru ekki einsleit heldur tengjast umferð, sjó, jöklum, gönguferðum og fleiri þáttum. Slys sem hugsanlega hefði mátt fyrirbyggja með öflugri forvörnum.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur á undanförnum árum beitt sér í auknu mæli í öryggismálum ferðamanna. Hálendisvakt björgunarsveitanna er nú hluti af Safetravel verkefninu en síðastliðin fjögur sumur hafa björgunarsveitir verið á hálendinu yfir sumartímann ferðamönnum til aðstoðar og leiðbeiningar með það að markmiðið að fækka slysum. Síðasta sumar voru sveitir þar í rúmar sex vikur og skiluðu tæplega 19.000 vinnustundum í sjálfboðalvinnu. Aðstoðarbeiðnum hjá hálendisvaktinni hefur fjölgað gífurlega. Árið 2008 voru þær 367 en 931 sumarið 2009. Helstu verkefni sveita voru aðstoða við vöð, veita fyrstu hjálp í sambandi við slys, veikindi og ofkælingu, sinna leit, leiðbeina og fræða ferðamenn og aðstoð með bíla.
Í ár var ákveðið að ganga skrefinu lengra og efla forvarnir, m.a. með því að ná saman sem flestum þeirra aðila er koma að öryggi ferðafólks með einum eða öðrum hætti. Leitað var samstarfs félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana í þeim tilgangi að nýta betur fjármuni, þekkingu og reynslu allra þeirra sem hafa verið að sinna þessum málum hingað til.
Eftirfarandi aðilar koma að Safetravel verkefninu:
Slysavarnafélagið Landsbjörg
Iðnaðarráðuneytið
Neyðarlínan 112
Vegagerðin
Ferðafélag Íslands
Veðurstofa Íslands
Samtök ferðaþjónustunnar
Ríkislögreglustjóri
Íslandsspil
Fíb
Síminn
Sjóvá
Ferðafélagið Útivist
Umhverfisstofnun
4x4
Umferðarstofa
Þessir aðilar hafa tekið höndum saman og sameinast um einn stað þar sem allar upplýsingar um örugga ferðamennsku eru aðgengilegar. Sá staður er heimasíðan www.safetravel.is og blaðið Safetravel. Þar eru aðgengilegar upplýsingar um akstur, gönguferðir, siglingar, köfun, sund, jöklaferðir, vélsleðaferðir, hellaferðir, hjólreiðar, skyndihjálp, hestaferðir, íslenska náttúru og veður svo eitthvað sé nefnt. Jafnframt verða tengingar inn á kort, færð, veður og það helsta sem er á döfinni í afþreyingu.
Blaðið Safetravel verður aðgengilegt á upplýsingamiðstöðvum, við Norrænu, á Keflavíkurflugvelli, í bílaleigubílum og víðar þar sem ferðamenn koma við. Það er á þremur tungumálum; ensku, þýsku og frönsku.
Heimasíðan www.safetravel.is er á sex tungumálum; íslensku, ensku, frönsku, þýsku, spænsku og ítölsku. Þar er að finna ítarlegar upplýsingar um ferðamennsku á Íslandi og munu allir helstu ferðaþjónustuaðilar auglýsa hana á sínum vefsvæðum. Er það von þeirra sem að verkefninu koma að þannig megi ná til erlendra ferðamanna áður en þeir koma til landsins og að þeir lesi sér til um öryggisatriði sem eiga við um þeirra ferðamáta áður en ferðalagið hefst. Vefsíðan nýtist einnig íslensku ferðafólki auk þess fjölmiðlar, bæklingar og auglýsingar í útvarpi og blöðum verða notaðar til að ná til þess hóps.