Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Fréttir

Sætanýting WOW air 91% í apríl
Þriðjudagur 8. maí 2018 kl. 11:26

Sætanýting WOW air 91% í apríl

WOW air flutti 237 þúsund farþega til og frá landinu í apríl eða um 9% fleiri farþega en í apríl árið 2017. Þá var sætanýting WOW air 91% í apríl í ár en var 88% í fyrra. Sætanýting jókst þrátt fyrir 8% aukningu á sætaframboði miðað við sama tímabil í fyrra.

Það sem af er ári þá hefur WOW air flutt um 895 þúsund farþega.
„Aldrei fyrr höfum við verið með betri sætanýtingu né flutt fleiri farþega í apríl en nú í ár. Bókunarstaðan inn á vor og sumar er góð en það er mjög ánægjulegt að sjá okkur takast að fylla vélarnar okkar allt árið um kring,“ segir Skúli Mogensen stofnandi og forstjóri WOW air.
WOW air flýgur nú til hátt í fjörutíu áfangastaða í Evrópu og Norður Ameríku en nýlega bættust fjórir nýir flugvellir við leiðarkerfi WOW air, Stansted flugvöllur í London, JFK flugvöllur í New York, Cleveland og Detroit.

Public deli
Public deli