Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Sækjast eftir 60 milljóna króna yfirdrætti hjá SpKef Sparisjóði
Þriðjudagur 1. mars 2011 kl. 10:08

Sækjast eftir 60 milljóna króna yfirdrætti hjá SpKef Sparisjóði

Þrátt fyrir að vera eitt skuldaminnsta sveitarfélag landsins, með skuldir upp á 166 þúsund krónaru á íbúa, þá þarf Sveitarfélagið Garður engu að síðar að hafa myndarlegan yfirdrátt.

Bæjarráð Garðs hefur samþykkt að senda Ásmund Friðriksson bæjarstjóra til fundar við Einar Hannesson sparisjóðsstjóra SpKef Sparisjóðs. Markmið fundarins á að vera að landa allt að 60 milljóna króna yfirdrætti hjá sparisjóðnum og semja um hagstæða vexti fyrir bæjarsjóð.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Ástæðan fyrir yfirdrættinum er sú að tekjustreymi bæjarsjóðs tekur ekki mið af greiðsluflæði getur myndast þörf á yfirdráttarláni til skemmri eða lengri tíma. Fram til þessa hefur Framtíðasjóður verið nýttur til að brúa þennan mismun.