Sá rautt – svo blátt
Freistingar manna eru margvíslegar. Þannig feistaði ökumaður þess í gær að aka gegn rauðu ljósi á gatnamótum Hringbrautar og Aðalgötu í Keflavík. Það hefði hann ekki átt að gera. Í fyrsta lagi er það stórhættulegt og svo er alltaf möguleiki á að keyra beint í flasið á lögreglunni. Það gerðist einmitt í gær, því ökumaðurinn sem stalst yfir á rauðu sá mjög fljótlega blá ljós einnig og þarf nú að greiða sektarfjárhæð sem nemur mörgum þúsundum króna.