Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Rýnt í nýtingu Reykjaneshallar og gerð nýs gervigrasvallar
Þriðjudagur 19. febrúar 2019 kl. 09:10

Rýnt í nýtingu Reykjaneshallar og gerð nýs gervigrasvallar

Staðsetning nýs gervigrasvallar vestan Reykjaneshallar mun ráðast af því hvort nýta eigi hann sem æfingavöll eða keppnisvöll. Þá má nýta Reykjaneshöll betur, að mati Sigurbjörns Boga Jónssonar og Sverris Bollasonar frá VSÓ. Þeir kynntu nýverið skýrslu um úttekt á hvoru fyrrgreindum íþróttamannvirkjum.
 
Fundur Reykjanesbæjar með forsvarsmönnum knattspyrnufélaganna í sveitarfélaginu um úttekt VSÓ á nýtingu Reykjaneshallar og staðsetningu nýs gervigrasvallar fór fram í Akademíunni í janúar. Bæjaryfirvöld hafa á undanförnum mánuðum hafið undirbúning að gerð nýs gervigrasvallar í Reykjanesbæ. Töluverð umræða hefur verið um að Reykjaneshöllin sé fullnýtt á bestu tímum hallarinnar.
 
Í framhaldi af þeirri umræðu var tekin sú ákvörðun að fá óháða aðila til að gera úttekt á notkuninni. Jafnframt að skoða hvar vestan Reykjaneshallar sé best að nýr gervigrasvöllur verði staðsettur.
 
Sigurbjörn Bogi Jónsson og Sverrir Bollason frá VSÓ kynntu helstu niðurstöður skýrslunnar. Þar kemur fram að nýting á æfinga- og keppnistímum hallarinnar sé nokkuð góð þó að alltaf megi gera betur. Að auki kynntu þeir nokkra valkosti um gerð nýs gervigrasvallar vestan Reykjaneshallar. Skiptir þar miklu máli hvort rætt sé um æfingavöll eða keppnisvöll, segir á vef Reykjanesbæjar.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024