Bygg
Bygg

Fréttir

Föstudagur 7. september 2001 kl. 09:18

Rýmri reglur um löndun erlendra skipa

Sjávarútvegsráðuneytið hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kynntar eru breytingar á reglum um landanir erlendra skipa á Íslandi. Hingað til hefur erlendum skipum, sem veiða innan og utan lögsögu Íslands, ekki verið heimilt að landa afla í höfnum hér á landi nem íslensk yfirvöld hafi samið um nýtingu viðkomandi stofns. „Ráðuneytið hefur nú ákveðið að rýmka þessar reglur þannig að erlend skip sem hafa leyfi grænslenskra stjórnvalda til veiða á grálúðu og karfa við A-Grænland, verði heimilt að landa afla sínum í höfnum hér á landi þótt ekki hafi tekist samningar við grænlensk stjórnvöld um nýtingu þessara stofna“, segir í fréttatilkynningunni. Ákvörðunin um rýmri reglur tók gildi 1. september nk. en verður endurskoðuð að ári liðnu.
Bílakjarninn
Bílakjarninn