Rýming við Bláa lónið tók um 40 mínútur
Bláa Lónið í Svartsengi hefur þegar rýmt öll sín athafnarsvæði vegna jarðhræringa sem hafa mælst við Sundhnjúkagígaröðina í kvöld og eldgossins í framhaldinu.
Áætlað að um 1.300 manns, gestir og starfsfólk, hafi verið við starfsstöðvar félagsins í Svartsengi á þeim tíma er rýmingin hófst.
Það tók um 40 mínútur að rýma athafnasvæðin.
Rýmingin gekk vel og eru gestir komnir á leiðarenda eða á leið á önnur hótel og starfsmenn til síns heima.
Allar starfsstöðvar Bláa Lónsins í Svartsengi og í Grindavík verða lokaðar á morgun, föstudag.