Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Fréttir

Ryksuga upp gúmmíkurl í Grindavík
Þriðjudagur 19. júlí 2016 kl. 10:00

Ryksuga upp gúmmíkurl í Grindavík

Börnin fá að njóta vafans

Sparkvellir í Grindavík eru lokaðir þessa dagana þar sem verið er að skipta út umdeildu gúmmikurli af völlunum. Verið er að ryksuga kurlið í burtu auk þess sem verið er að skipta um gras á eldri vellinum við Ásabraut. Stórvikrar vinnuvélar sjá um verkið eins og sjá má á eftirfarandi mynd sem birtist á vef Grindavíkurbæjar.

Gúmmíkurl á sparkvöllum hefur verið talsvert til umræðu en vellirnir eru gjarnar þaktir úrgangsdekkjakurli sem læknar hafa varað við. Annar völlurinn í Grindavík er frá árinu 2006 og hinn 2010. Grindavíkurbær ákvað því að leyfa börnunum að njóta vafans og skipta gúmmíkurlinu út.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024