RÚV setur upp nýja senda í Sandgerði
Ríkisútvarpið hefur sett upp nýja og öflugri senda fyrir Rás 1 og Rás 2 í Sandgerði.
Tíðnir eru eftirfarandi:
Rás 1: 98,2 MHz
Rás 2: 95,0 MHz.
Með þessu hafa hlustunarskilyrði verið bætt verulega fyrir þessar rásir í Sandgerði.
Því miður hefur komið í ljós að við þessa breytingu virðast sendingar annarra útvarpsstöðva hafa truflast að einhverju leyti. Þau mál eru nú í athugun hjá tæknideild Sandgerðisbæjar í samstarfi við aðrar útvarpsstöðvar. Meðal annars er verið að skoða framtíðarstaðsetningu endurvarpsstöðva fyrir bæinn.
Íbúar eru beðnir að sýna biðlund meðan lausn er fundin á þessum málum.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson