Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Fréttir

Rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar næsta vor
Miðvikudagur 16. september 2015 kl. 11:29

Rútuferðir milli Keflavíkurflugvallar og Akureyrar næsta vor

Fargjaldið aðra leið mun kosta 11 þús. kr.

Ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line hefur ákveðið að hefja beinar áætlunarferðir milli Akureyrar og Keflavíkurflugvallar næsta vor. Í apríl og maí verður ekið þrisvar í viku en daglega yfir sumarið fram í miðjan september.
 
Áætlun Gray Line Airport Express verður með þeim hætti að brottför verður frá Keflavík kl. 17:00, komið til Akureyrar um kl. 23:00. Þaðan verður haldið kl. 23:15 og komið til Keflavíkur kl. 05:15. Flugfarþegar sem koma til landsins síðdegis komast þannig norður fyrir miðnætti og farþegar að norðan komast beint í morgunflug.
 
Á leiðinni verður stoppað fyrir farþega í Borgarnesi, Staðarskála, Blönduósi og Varmahlíð. Fargjald aðra leið verður 11.000 milli Akureyrar og Keflavíkur, Varmahlíð 10.000 kr., Blönduós 9.000 kr., Staðarskáli 7.000 kr. og Borgarnes 4.500 kr.
 
Gray Line leggur áherslu á að ferðalagið verði þægilegt og ánægjulegt og verða eingöngu lúxusrútur úr flota fyrirtækisins notaðar á leiðinni. Þær eru með salernum og veitingaaðstöðu ásamt internetteningu og tveir bílstjórar verða ávallt með í för til að tryggja gæði þjónustunnar.
 
„Þessi Airport Express áætlun þýðir að farþegar geta verið komnir til Akureyrar fyrir miðnætti sama dag og þeir lenda. Á sama hátt geta þeir sem koma að norðan náð morgunflugi frá Keflavíkurflugvelli og sparað sér þannig að fara suður daginn áður,“ segir segir Þórir Garðarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Gray Line.
 
Fyrsta ferðin verður farin sunnudaginn 3. apríl 2016. Í apríl og maí verður ekið á þriðjudögum, fimmtudögum og sunnudögum, og síðan daglega yfir sumarið.
 
„Við hlökkum mikið til að geta boðið landsbyggðinni upp á þessa beinu tengingu við millilandaflugið. Það á jafnt við um Norðurlandið og þá staði sem eru á leiðinni. Við teljum líka að þessi beina tenging við alþjóðaflugið geti stuðlað að lengri dvöl ferðamanna úti á landi og verið ákjósanlegur valkostur fyrir þá sem eiga aðeins erindi þangað og ætla ekki að stoppa á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir íbúa á leiðinni er mikil hagræðing af þessari áætlun, því þá fer minni tími í að komast til og frá flugvellinum, auk þess sem skilja má bílinn eftir heima,“ segir Þórir Garðarsson. 
 
„Vafalítið mun koma að því að beint flug til Akureyrar geti orðið sjálfbær kostur. Það hefur oft verið reynt en ekki gengið upp. Meðan verið er að skapa þann markað teljum við farsælast að byggja á þeirri staðreynd að mestallt millilandaflug fer um Keflavíkurflugvöll. Hann þjónar öllu flugi frá útlöndum en viðbúið er að beint flug til Akureyrar tengist aðeins einum áfangastað erlendis. Beinar rútuferðir frá Keflavíkurflugvelli ná til margfalt stærri hóps ferðamanna en beint flug norður.  
Við teljum því skynsamlegast í stöðunni að megináherslan í markaðssetningu Norðurlands beinist áfram að flugfarþegum sem fara um Keflavikurflugvöll, enda eru það um 9 af hverjum 10 ferðamönnum sem hingað koma,“ segir Þórir ennfremur.
 
Gray Line hefur kynnt fyrirhugaða beina línu til Keflavíkur fyrir ýmsum aðilum í ferðaþjónustunni og fengið góðar undirtektir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024