Rúta fór útaf Reykjanesbraut
Skömmu fyrir níu í gærkvöldi varð umferðaróhapp á Reykjanesbraut er rúta fauk útaf skammt vestan við Vogaveg. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og slapp hann ómeiddur. Litlar sem engar skemmdir voru á rútunni og var hún dregin upp á veg af annarri rútu. Þegar rútan fauk útaf skemmdi hún umferðarmerki í leiðinni en hálka og slæmt skyggni ásamt hvassviðri voru á Reykjanesbraut er rútan fauk útaf.
Um 23 leytið í gærkvöldi fékk lögreglan í Keflavík tilkynningu um að bifreið væri utan vegar á Nesvegi sem liggur til Hafna. Engin meiðsli urðu á fólki og engar voru skemmdirnar á bifreiðinni sem dregin var upp á veg af annarri bifreið.